Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 15. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aðalfundi KÞÍ frestað vegna samkomubanns
Mynd: Merki
Vegna samkomubanns hefur fyrirhugðum aðalfundi Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ) sem átti að fara fram 30. mars verið frestað.

Aðalfundinum er frestað um óákveðinn tíma en að óbreyttu er stefnt á að hann fari fram í síðari hluta apríl.

Athygli er vakin á því að tilnefningar til stjórnarkjörs KÞÍ þurfa að hafa borist stjórn KÞÍ á netfangið [email protected] síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund félagsins samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga KÞÍ. Að þessu sinni eru tvö sæti stjórnarmanna laus, þ.e. eins meðstjórnanda og eins varamanns. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.

Þá er athyglin vakin á því að tillögur um lagabreytingar á lögum KÞÍ skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega sjö dögum fyrir aðalfund samkvæmt 11. gr. laganna. Breytingar þurfa samþykki ¾ fundarmanna.

Að fundi loknum verða veittar viðurkenningar fyrir þjálfara ársins hjá mfl. karla og kvenna og viðurkenningar fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka.

Léttar veitingar verða á boðstólum.

Dagskrá fundar samkvæmt 10. gr. laga KÞÍ:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnarmanna samkvæmt ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga KÞÍ.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
Ákvörðun um árgjald samkvæmt 6. gr. laga KÞÍ.
Önnur mál.
Athugasemdir
banner
banner