Richarlison var maður leiksins í 1-1 jafntefli Liverpool og Tottenham á Anfield í dag.
Liverpool Echo heldur utan um einkunnir leikmanna Liverpool en þar var Alisson bestur með 8 í einkunn. Alexis Mac Allister var slakasti maður liðsins með fimmu.
Richarlison var maður leiksins að mati Football.London og Sky Sports. Hann var stanslaus ógn í liði Tottenham og skoraði mikilvægt jöfnunarmark undir lok leiks. Hann fær 8 frá Football.London.
Radu Dragusin, varnarmaður Tottenham, var slakasti maður vallarins með 4 í einkunn.
Liverpool: Alisson (8), Szoboszlai (7), Gomez (6), Van Dijk (6), Robertson (6), Gravenberch (6), Mac Allister (5), Frimpong (6), Wirtz (6), Ngumoha (7), Gakpo (6).
Varamenn: Salah (6), Jones (5), Ekitike (5).
Tottenham: Vicario (5), Porro (5), Danso (8), Dragusin (4), Spence (5), Souza (5), Gray (7), Sarr (6), Tel (6), Solanke (5), Richarlison (8).
Varamenn: Simons (6), Olusesi (6), Kolo Muani (7).
Athugasemdir



