Hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir byrjaði í fyrsta sinn með íslenska A-landsliðinu í gær þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM.
Uppgangurinn hefur verið hraður hjá Thelmu Karen sem sló í gegn í Bestu deildinni síðasta sumar með FH. Núna er hún komin út í atvinnumennsku til Svíþjóðar og farin að byrja með A-landsliðinu.
Uppgangurinn hefur verið hraður hjá Thelmu Karen sem sló í gegn í Bestu deildinni síðasta sumar með FH. Núna er hún komin út í atvinnumennsku til Svíþjóðar og farin að byrja með A-landsliðinu.
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, sem jafnaði leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í gær hrósaði Thelmu í hástert í viðtali eftir leikinn í gær.
„Hún er þessi týpíski kantmaður, frábær einn á einn. Hún er ótrúlega skemmtileg týpa og gaman að fá hana inn í hópinn," sagði Glódís.
„Hún á mjög bjarta framtíð fyrir sér í landsliðinu og það verður gaman að sjá hvað hún gerir. Ætli hún taki þetta met ekki af mér eftir nokkur ár?" sagði landsliðsfyrirliðinn og hló.



