Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 15. apríl 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Kristian líkt við stórt nafn í hollensku deildinni - „Ajax afskrifaði hann of fljótt“
Kristian Nökkvi
Kristian Nökkvi
Mynd: EPA
Kristian Nökkvi Hlynsson er í banastuði hjá hollenska félaginu Twente og skorað sjö mörk í síðustu tíu leikjum, en hollenskir sérfræðingar eru á því að hann hafi verið afskrifaður of fljótt hjá Ajax.

Ajax seldi Kristian til Twente síðasta sumar fyrir aðeins 1,8 milljónir evra en markaðsvirði hans hefur hækkað verulega síðan þá og er hann í dag metinn á 5,5 milljónir.

Honum hefur verið líkt við Sem Steijn, sem gekk í raðir Feyenoord frá Twente á síðasta ári, en Steijn hefur verið með bestu leikmönnum hollensku deildarinnar síðustu ár. Hann skoraði 56 mörk í 124 leikjum með Twente og gert 7 mörk fyrir Feyenoord á þessu tímabili.

Um helgina skoraði Kristian annað mark Twente í 2-1 sigrinum á Volendam.

„Hann er farinn að minna á Steijn. Hann er á leiðinni í tveggja stafa tölu,“ sagði spjallþáttastjórnandinn Bert van Losser.

Fyrrum þjálfarinn Jack de Gier segir frammistöðu Kristians ekki koma sér á óvart.

„Hann hefur alltaf verið góður. Hann er mjög góður miðjumaður og verður bara betri með hverjum deginum. Það er allt að smella saman á miðsvæðinu hjá Twente með honum, Zerrouki og Van den Belt. Það er unun að horfa á þetta,“ sagði De Gier.

Willem Leijgraf, sem heldur utan um tölfræðisíðuna Football Transfers í Hollandi segir tölurnar benda til þess að Ajax hafi afskrifað hann of fljótt.

Kristian, sem er orðinn fastamaður í íslenska landsliðinu, er kominn með níu mörk í öllum keppnum á þessari leiktíð og verið mikilvægur í baráttu Twente um að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Slapp
banner
banner