Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 15. apríl 2026 10:23
Elvar Geir Magnússon
Martínez hafi réttilega fengið rautt fyrir hártogið
Martínez togar í hár Calvert-Lewin.
Martínez togar í hár Calvert-Lewin.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrrum fótboltadómarinn Andy Davies segir að Paul Tierney dómari hafi tekið rétta ákvörðun með því að gefa varnarmanninum Lisandro Martínez hjá Manchester United rautt spjald.

Martínez tók í hár Dominic Calvert-Lewin, sóknarmanns Leeds, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn. Tierney var sendur í skjáinn og gaf Martínez rautt spjald.

Michael Carrick, stjóri Manchester United, var allt annað en sáttur við dóminn en Davies segir að samkvæmt reglum og áherslum hafi hann verið réttur.

„Samkvæmt nýjum áherslum á þessari leiktíð hefur dómurum verið sagt að taka strangt á því þegar togað er í hár andstæðings. Þetta telst ekki fótboltaleg hegðun og er ekki ásættanleg. Hún telst ofbeldisfull og skal refsað með rauðu spjaldi," segir Davies.

„Fordæmi var sett í ensku úrvalsdeildinni þegar Michael Keane, varnarmanni Everton, var refsað fyrir svipað brot á Tolu Arokodare, framherja Wolves, í janúar."

„Tíminn sem það tók dómarann Paul Tierney að skoða atvikið við skjáinn bendir til þess að honum hafi þótt nokkuð óþægilegt að taka ákvörðunina um rautt spjald, þar sem hann togaði ekki mjög fast. Það hefur verið að færast í aukana að togað sé í hár leikmanna og dómarayfirvöld vilja gefa skýr skilaboð um að það sé tekið fast á þessum atvikum."

Margir hafa gagnrýnt rauða spjaldið, meðal annars þar sem Martínez hafi ekki togað í hárið af neinu offorsi. Hann fær þriggja leikja bann fyrir brotið, refsing sem mörgum þykir ströng og ósanngjörn í ljósi eðlis brotsins. Leeds vann leikinn 2-1 á mánudaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner