Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. maí 2020 21:15
Aksentije Milisic
Alfreð meiddur - Ekki með um helgina
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason er lítillega meiddur og verður ekki með um helgina þegar þýska deildin fer í gang á ný. Þetta kom fram í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.

„Alfreð Finnbogason meiddist lítillega og missir af fyrstu tveimur leikjunum," sagði Hjörvar Hafliðason, þáttastjórnandi hlaðvarpsþáttarins Dr. Football.

Augsburg mætir Wolfsburg á morgun á heimavelli.

Þá kom það einnig fram í þættinum í dag að Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Paderborn, spili heldur ekki um þessa helgi vegna meiðsla.

Paderborn er í neðsta sæti deildarinnar á meðan Augsburg er í því 14, fimm stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner