Á fundi stjórnar Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) sem haldinn var í Bakú í Aserbaídsjan 29. maí síðastliðinn var skipað í ýmsar nefndir og ráð á vegum UEFA. Gildir sú skipun fyrir tímabilið 2019-2023 og tekur gildi frá og með 1. júlí á þessu ári.
Íslensk knattspyrna á fimm fulltrúa í þessum nefndum.
Nefnd um mót landsliða (National Team Competitions Committee): Guðni Bergsson, 3. varaformaður.
Nefnd um knattspyrnu kvenna (Women’s Football Committee): Guðrún Inga Sivertsen.
Nefnd um leyfiskerfi (Club Licensing Committee): Lúðvík Georgsson.
Nefnd um markaðsmál og ráðgjöf (Marketing Advisory Committee): Borghildur Sigurðardóttir.
Nefnd um háttvísi og samfélagslega ábyrgð (Fair Play and Social Responsibility Committee): Klara Bjartmarz, 3. varaformaður.
„KSÍ hefur um árabil kappkostað að vera virkt í innra starfi hjá UEFA og FIFA og er þessi þátttaka í alþjóðlegum verkefnum viðurkenning á því starfi," segir á vefsíðu KSÍ.
Athugasemdir