Fotbolti.net
15.07.03 - 00:00
Magnús Guðmundsson

Tim Howard kominn til Manchester United (Staðfest)

Manchester United hafa fengið Bandaríska markmanninn Tim Howard til sín á fjögra ára samning.
Howard er fyrsti Bandaríski leikmaðurinn sem hefur skrifað undir samning á Old Trafford, hann mun spila sína fyrstu leiki fyrir Man Utd nú síðar í þessum mánuði þar sem að Fabien Barthez verður enn í fríi eftir álfukeppnina.

Þetta er frábær tilfinning, nú þarf ég bara að verða betri og vinna meira. Ef ég fæ að vera einhverntíman í byrjunaliðinu þá er það frábært, ef ég verð á bekknum þá er það frábært líka.


Ég er svo ánægður. Þetta er búið að vera langur tími, mér finnst ég vera svo heppinn, það eru ekki margir sem fá þetta tækifæri, mér finnst ég vera blessaður.


Augljóslega er landsliðið líka stórt atriði fyrir mig og ég þarf að spila til að verða betri.

Sagði Tim Howard.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.