15.07.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fulop farinn til Grikklands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marton Fulop, fyrrverandi markvörður West Bromwich Albion á Englandi, er genginn til liðs við Astera Tripolis í Grikklandi eftir átta ára dvöl á Englandi.
Fulop, sem varð samningslaus eftir síðasta tímabil, hefur skrifað undir tveggja ára samning við gríska félagið, en Astera greinir frá því á vefsíðu sinni.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir hjá svona skipulögðu félagi með sterkan fjárhagslegan bakgrunn,\" sagði Fulop.
,,Allt er frábært hér og félagið tekur þátt í Evrópudeild Félagsliða. Ég elska fótbolta og lít á sjálfan mig sem góðan markvörð og vil sanna mig fyrir stuðningsmönnum félagsins.\"