15.07.12 - 22:41
Magnús Már Einarsson
Aaron Spear í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. hefur fengið sóknarmanninn Aaron Spear á láni frá ÍBV út tímabilið en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í kvöld.
Aaron, sem er 19 ára, kom til ÍBV í fyrra en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðinu í sumar.
Aaron hefur skorað tvö mörk í fimm deildar og bikarleikjum í sumar en hann hefur einnig leikið með öðrum flokki Eyjamanna.
Gert er ráð fyrir því að Aaron verði kominn með leikheimild þegar Víkingur mætir nöfnum sínum úr Ólafsvík í fyrstu deildinni á þriðjudagskvöld.
Í kvöld kemur síðan danski vængmaðurinn Kevin Schmidt til Víkings á reynslu.
Víkingur mun ganga frá samningi við hann á næstu dögum ef hann stendur undir væntingum. Kevin hefur áður verið á mála hjá Lyngby, FC Kobenhavn og HIK Hellerup.