Manuel Neuer og Marc-Andre ter Stegen eru keppinautar um byrjunarliðsstöðuna í þýska landsliðinu og hafa nokkrum sinnum lent í orðaskaki í fjölmiðlum þar sem Ter Stegen er ósáttur með fá tækifæri með landsliðinu.
Þeir mættust í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi er Bayern lagði Barcelona að velli með átta mörkum gegn tveimur.
„Ég finn til með Marc-Andre ter Stegen því hann fékk svo mörg mörk á sig. Það er auðvitað gott fyrir okkur að skora svona mikið en það er leiðinlegt að sjá samherja sinn lenda í þessu," sagði Neuer eftir leikinn.
„Við vorum ótrúlega sterkir í leiknum og spiluðum til að sækja. Við stoppuðum aldrei og gáfum þeim aldrei tíma til að draga andann."
Thiago Alcantara, fyrrum leikmaður Barca, átti góðan leik á miðjunni og fór einnig í viðtal að leikslokum.
„Barcelona er frábært félag sem getur snúið þessum slæma kafla við. Ég ber mikla virðingu fyrir félaginu og fyrrum liðsfélögum mínum."
Athugasemdir