Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. september 2020 22:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Martínez kveður Arsenal - Rúnar inn í staðinn?
Mynd: Getty Images
Emiliano Martínez er búinn að staðfesta brottför sína frá Arsenal. Það gerði hann í Instagram færslu nú í kvöld. Hann birtir gamla mynd af sér fyrir leik og skrifar við hana:

„Þakka þér fyrir Arsenal." Færslunni fylgir myndband þar sem m.a. segir að hann hafi alltaf haft þá tilfinningu að hann myndi fá tækifærið hjá Arsenal og að hann elski félagið. Myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Mikið hefur verið rætt og ritað um það að Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður og markvörður Dijon í Frakklandi, geti verið á leiðinni til Arsenal í stað Martinez.

Martínez er á leiðinni til Aston Villa þar sem hann mun berjast um markvarðarstöðuna við Tom Heaton þegar sá enski snýr til baka eftir meiðsli. Martínez er talinn kosta Aston Villa um 20 milljónir punda.

Í gær sagði 433.is að Rúnar Alex myndi fara í læknisskoðun hjá Arsenal (í gær) og skrifa undir fimm ára samning við félagið.

View this post on Instagram

Thank you @arsenal

A post shared by Emiliano Martinez (@emi_martinez26) on


Athugasemdir
banner
banner
banner