Ónefndur leikmaður búlgarska landsliðsins gaf sig á tal við leikmenn enska landsliðsins eftir leik liðanna í gær og baðst afsökunar á kynþáttafordómum frá stuðningsmönnum.
Tvívegis þurfti að stöðva leik Englands og Búlgaríu í fyrri hálfleik í gær vegna kynþáttafordóma hjá stuðningsmönnum Búlgaríu.
Leikmaðurinn sem um ræðir ku hafa sagt leikmönnum enska landsliðsins að stuðningsmenn Búlgaríu hafi skipulagt það fyrir leik að vera með kynþáttafordóma í garð enskra leikmanna.

Í hálfleik var 50 stuðningsmönnum Búlgaríu vikið af leikvanginum og í kjölfarið var minna um fordóma í síðari hálfleik. Einhverjir áhorfendur héldu þó áfram að vera með fordóma í garð enskra leikmann í síðari hálfleik.
Þessi rasismi sem Búlgarar sýndu Engl. í gær kemur mér því miður ekki á óvart. Ég spilaði með leikmanni í Cska Sofia sem var fæddur í Brasilíu en með Bulgarskt ríkisfang. Í sínum fyrsta landsleik fyrir Búlgaríu varð hann fyrir rasisma, frá sínum eigin aðdáendum! #Notoracism pic.twitter.com/F1HfNMQayc
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) October 15, 2019
Athugasemdir