Þrisvar sinnum gerðist það í 1 - 2 tapi Íslands gegn Belgum á Laugardalsvelli í gær að vallarstarfsmenn ruku inn á völlinn í miðjum leik.
Völlurinn hefur verið í frekar slæmu ástandi í haustleikjunum og virðist sem lagning á vökvunarkerfi í sumar sé að valda usla.
Fjöldi sérfræðinga vinnur í að finna lausn á því vandamáli hvernig torfur rifna upp í kringum svæðið sem vökvunarkerfið er.
Í leiknum í gær fór ein slík torfa upp úr grasinu og Kristinn V. Jóhannsson vallarstjóri tók tvisvar sprettinn inn á völlinn og lagaði á meðan boltinn var hinum megin á vellinum.
Hann var þó ekki sá eini sem þurfti að taka slíkan sprett inn á völlinn í miðjum leik því eitt skiptið fór aukabolti inn á völlinn. Boltastrákur tók þá sprettinn og náði í hann eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Athugasemdir