Fótbolti.net mótið: Skagamenn lögðu Íslandsmeistarana

Skagamenn eru á toppi riðils 1 ásamt KR-ingum.

Mynd: Marella Steinsdóttir

Skagamenn eru á toppi riðils 1 ásamt KR-ingum.

Mynd: Marella Steinsdóttir
Skagamenn lögðu Hafnfirðinga og Blikar höfðu betur gegn Ólafsvíkingum í fyrstu leikjum dagsins í Fótbolta.net mótinu.
Steven Lennon kom FH yfir gegn ÍA í Akraneshöllinni en Arnór Snær Guðmundsson og Steinar Þorsteinsson stálu sigrinum fyrir heimamenn á lokamínútum leiksins.
Steven Lennon kom FH yfir gegn ÍA í Akraneshöllinni en Arnór Snær Guðmundsson og Steinar Þorsteinsson stálu sigrinum fyrir heimamenn á lokamínútum leiksins.
Blikar mættu Víkingi Ólafsvík í Fífunni og gerði Atli Sigurjónsson eina mark leiksins úr vítaspyrnu.
Stöðuna í riðli 1 er hægt að sjá hér fyrir neðan, þó það gæti vantað sigur ÍA inn á töfluna í fyrstu. Ólsarar eru stigalausir á botni riðils 2 og Blikar eru með þrjú stig eftir tvær umferðir.
A deild - Riðill 1:
ÍA 2 - 1 FH
0-1 Steven Lennon (\'3)
1-1 Arnór Snær Guðmundsson (\'80)
2-1 Steinar Þorsteinsson (\'89)
A deild - Riðill 2:
Breiðablik 1 - 0 Víkingur Ólafsvík
1-0 Atli Sigurjónsson (\'41, víti)