Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 16. janúar 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Dybala ætlaði til Tottenham - Bjó til kveðjumyndband
Mynd: Getty Images
Paulo Dybala, framherji Juventus, ætlaði að ganga í raðir Tottenham síðastliðið sumar áður en hann skipti um skoðun á síðustu stundu.

La Gazzetta dello Sport segir að Dybala hafi verið svo viss um að hann myndi fara frá Juventus að hann hafi verið búinn að búa til kveðjumyndband fyrir stuðningsmenn félagsins.

Oriana Sabatini, eiginkona Dybala, var spennt fyrir því að flytja til London en á endanum hætti argentínski leikmaðurinn við.

Dybala hefur unnið sér inn stærra hlutverk hjá Juventus í vetur en hann hefur skorað ellefu mörk og lagt upp níu í 25 leikjum á tímabilinu.

Ítalskir fjölmiðlar segja nú allt benda til þess að hann mun framlengja samning sinn við félagið til ársins 2025.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner