Það er nóg af leikjum í spænska boltanum í dag þó að það sé stutt hlé í deildakeppnum á Spáni.
Deildakeppnin mun fara af stað á ný í miðri viku en um helgina er leikið í spænska Konungsbikarnum.
Nokkur lið í efstu deild eiga leiki í dag og má nefna stórlið Sevilla sem spilar við Leganes í síðustu viðureigninni.
Sevilla spilar við Leganes á útivelli og er það síðarnefnda til alls líklegt í svona keppni þar sem lykilmenn gætu verið hvíldir.
Fleiri leikir eru í boði eins og má sjá hér fyrir neðan.
Laugardagur:
11:00 Almeria - Alaves
11:00 Vallecano - Elche
15:00 Girona - Cadiz
17:00 Fuenlabrada - Levante
19:00 Leganes - Sevilla
19:00 Pena Deportivo - Valladolid
Athugasemdir