Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 22:00
Kári Snorrason
Danijel Djuric á leið til Serbíu
Danijel er samningsbundinn Istra út tímabilið 2028.
Danijel er samningsbundinn Istra út tímabilið 2028.
Mynd: NK Istra 1961
Danijel Dejan Djuric er að ganga í raðir serbneska liðsins Zeleznicar Pancevo á láni út tímabilið frá króatíska liðinu NK Istra. Frá þessu greina króatískir miðlar og passar þetta við heimildir Fótbolta.net.

Danijel gekk til liðs við Istra fyrir ári síðan frá Víkingi en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá króatíska félaginu.

Danijel hefur komið við í tíu deildarleikjum á tímabilinu og aðeins einu sinni byrjað leik í deild. Hann hefur verið utan hóps í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Liðsfélagi hans hjá Istra, Logi Hrafn Róbertsson er sömuleiðis að yfirgefa króatíska félagið og er á leiðinni til Varnamö í sænsku B-deildinni, þar sem Srdjan Tufegdzic, Túfa, er þjálfari.

Zeleznicar er í fjórða sæti í serbnesku úrvalsdeildarinnar nú þegar 23 leikir hafa verið spilaðir. Danijel hefur serbneska tengingu þar sem faðir hans er frá Serbíu en móðir hans er frá Búlgaríu.

Aleksandar Linta, núverandi þjálfari ÍBV, stýrði Zeleznicar haustið 2023 en var látinn fara eftir aðeins sex leiki.

Athugasemdir
banner