City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 15:04
Elvar Geir Magnússon
Guardiola hætti við æfingu - Allir fengu frí nema einn
Bernardo Silva og Pep Guardiola.
Bernardo Silva og Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, aflýsti æfingu sem átti að vera núna klukkan 15 og ákvað að gefa leikmönnum sínum frídag.

Manchester City tekur á móti Real Madrid á morgun í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum en Madrídingar unnu 3-0 sigur í fyrri leiknum.

„Þetta er óvenjuleg ákvörðun hjá Guardiola í ljósi mikilvægi leiksins. Hann hefur hinsvegar gert þetta áður, fyrir leik gegn Borussia Dortmund í deildarkeppninni í nóvember. City vann þann leik 4-1," segir Simon Stone hjá BBC.

Guardiola segir að sínir menn muni æfa á morgun, að morgni leikdags. Þar munu leikmenn ganga í gegnum taktík og ljóst að ákefðin verður lítil sem engin.

Manchester City stóð hinsvegar við skyldur sínar varðandi fréttamannafund daginn fyrir leik en auk Guardiola var Bernardo Silva á fundinum.

„Ég var sá eini sem fékk ekki frídag!" sagði Silva á fundinum.

„Eftir öll ferðalögin hjá okkur undanfarna viku held ég að það hafi verið rétt ákvörðun að taka frídag. Það er betra fyrir okkur að ná góðum svefni og koma sterkari til baka á morgun og tilbúnir í slaginn."
Athugasemdir
banner
banner