City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 11:33
Elvar Geir Magnússon
Mbappe og Bellingham í hópnum hjá Real í seinni leiknum gegn City
Jude Bellingham og Kylian Mbappe.
Jude Bellingham og Kylian Mbappe.
Mynd: EPA
Kylian Mbappe og Jude Bellingham eru mættir aftur í leikmannahóp Real Madrid, fyrir seinni leikinn gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem fram fer á morgun.

Real Madrid er með öll spil á hendi eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum á Spáni.

Mbappe, sem er 27 ára, hefur verið að glíma við hnémeiðsli og hefur ekki spilað síðan 21. febrúar.

Bellingham spilaði síðast þann 1. febrúar þegar hann fór niðurbrotinn meiddur aftan í læri velli snemma leiks gegn Rayo Vallecano.

Auk þeirra þá eru Alvaro Carreras og David Alaba mættir til baka en Raul Asencio er meiddur og fer ekki með til Englands.


Athugasemdir
banner
banner
banner