Njarðvík tilkynnti um tvær breytingar á leikmannahópi liðsins á fimmtudag. Magnús Þórðarson gekk í raðir félagsins á láni frá Fram.
Magnús er 22 ára sóknarmaður og skoraði hann strax í fyrsta leik gegn Magna í gær. Magnús kom inn á 78. mínútu og kom Njarðvík í 1-2 á 80. mínútu, ágætis byrjun með nýju liði!
Magnús er 22 ára sóknarmaður og skoraði hann strax í fyrsta leik gegn Magna í gær. Magnús kom inn á 78. mínútu og kom Njarðvík í 1-2 á 80. mínútu, ágætis byrjun með nýju liði!
Þá tók Stefán Birgir Jóhannesson ákvörðun í síðustu viku um að taka sér hlé frá fótbolta í sumar.
„Það er mikill missir af Stefáni en hann hefur spilað fyrir Njarðvík frá árinu 2014 og á yfir 150 leiki á bakinu. Knattspyrnudeildin vill þakka honum fyrir framlag sitt til félagsins og óskar honum velfarnaðar í leik og starfi," segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Magni jafnaði leikinn skömmu eftir mark Magnúsar í gær og enduðu leikar með 2-2 jafntefli.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir