Fotbolti.net
16.06.21 - 16:21
Ívan Guðjón Baldursson

Belgía: Aron Sigurðarson með tvennu

Belgía: Aron Sigurðarson með tvennu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Mons 2 - 6 St. Gilloise</b>
0-1 A. Cordaro ('7)
0-2 D. Undav ('22)
0-3 Ziani ('27)
1-3 O. Traore ('45)
1-4 Aron Sigurðarson ('47)
2-4 A. Cordaro ('51, sjálfsmark)
2-5 Aron Sigurðarson ('81)
2-6 Ziani ('85)
Aron Sigurðarson var í liði St. Gilloise sem spilaði æfingaleik við Mons í Belgíu í dag.

St. Gilloise rúllaði yfir andstæðingana sína og skoraði Aron tvennu í síðari hálfleik.

Staðan var 1-3 í leikhlé og gerði Aron fjórða mark St. Gilloise í upphafi síðari hálfleiks. Hann skoraði svo fimmta mark sinna manna á 81. mínútu og urðu lokatölur 2-6.

St. Gilloise rúllaði yfir belgísku B-deildina á síðustu leiktíð og mun því spila í efstu deild í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.