Það er búið að raða niður leikjum fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrsta umferð fer fram helgina í kringum 14. ágúst og lokaumferðin fer fram 22. maí á næsta ári.
Fyrsta umferð fer fram helgina í kringum 14. ágúst og lokaumferðin fer fram 22. maí á næsta ári.
Tottenham mætir Manchester City í fyrstu umferð og Leeds mætir Manchester United.
Fyrsti úrvalsdeildarleikur Brentford verður gegn Arsenal. Norwich á erfiða byrjun því liðið mætir Liverpool, Manchester City, Leicester og Arsenal í fyrstu fjórum umferðunum.
Manchester City á líka erfiða dagskrá í fyrstu sjö umferðunum, meistararnir mæta Tottenham, Arsenal, Chelsea, Leicester og Liverpool í upphafi móts.
Chelsea mætir þá Arsenal, Liverpool, Aston Villa og Tottenham eftir fyrsta leik gegn Tottenham.
Athugasemdir