Haíti er úr leik í undankeppni HM eftir tap gegn Kanada í nótt. Kanada, Panama og El Salvador fara í næstu umferð eftir sigra í sínum einvígum
Haíti tapaði sínu einvígi 4-0 en staðan í einvíginu var 1-0 í einvíginu, eftir mark í fyrri leiknum, þegar seinni hálfleikur hófst í nótt og því allt galopið.
Markvörðurinn Josue Duverger hafði átt góðan fyrri hálfleik. Hann fékk sendingu til baka í upphafi seinni hálfleiks og misheppnaðist móttakan. Hann varð því að drífa sig í því að hreinsa í burtu af marklínunni en hitti ekki boltann.
Ofboðslega klaufalegt hjá Duverger sem fæddur er í Kanada. Þetta má sjá hér að neðan.
OH NO HAITI 😭pic.twitter.com/MkLt3XKxsf
— Goal (@goal) June 16, 2021
Athugasemdir