Fotbolti.net
16.07.03 - 00:00

Eiður skrifar undir (staðfest)

Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði og þjóðarstolt skrifaði nú í dag undir samning við Chelsea.
Samningurinn felur í sér framlengingu um eitt ár (þar með er hann orðinn þrjú ár)auk launahækkunar. Þar með verður eitthvað minna um slúður um hvert hann er að fara og hverjir vilji kaupa. Því er þó ekki lofað að ímyndaðar óléttar kærustur skjóti upp kollinum.

Við þetta tæki færi þakkaði Eiður starfsfólki Chelsea og var ánægður með allir væru sáttir við veru hans hjá klúbbnum, jafnt hann og forráðamenn.

Um markaskorun sagði Eiður: "Síðasta tímabil var mjög meðal hjá mér og það er eitthvað sem ég vil laga".

Aðrar fréttir af Chelsea er að þeir leystu Ítalann Gabriel Ambrosetti undan samningi í dag en hann hefur ekkert spilað með liðinu í þrjú ár. Piacenza hafði víst áhuga á honum og eflaust mun hann reyna að endurvekja ferilinn á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.