16.07.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Michael Bradley til AS Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AS Roma á Ítalíu hefur fest kaup á bandaríska miðvallarleikmanninum Michael Bradley frá Chievo.
Bradley, sem er 24 ára gamall skrifaði í dag undir fjögurra ára samning, en talið er að kaupverðið á honum sé í kringum 3,75 milljónir evra.
Hann kom til Chievo frá þýska liðinu Borussia Monchengladbach í fyrra og gerði þá tveggja ára samning.
Adrian Stoian, sem er 21 árs gamall leikmaður Roma, fer til Chievo í skiptum og verður þar á komandi tímabili.
Bradley hefur leikið 69 leiki fyrir bandaríska landsliðið, en faðir hans er, Bob Bradley, fyrrum þjálfari bandaríska landsliðsins og núverandi þjálfari Egyptalands.

Heimild: Sky