Fotbolti.net
16.07.12 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Gunnar Geir í ÍA (Staðfest)

Páll Gísli Jónsson aðalmarkvörður ÍA er frá keppni vegna meiðsla.

Páll Gísli Jónsson aðalmarkvörður ÍA er frá keppni vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur fengið markvörðinn Gunnar Geir Gunnlaugsson á láni frá HK út tímabilið.
Gunnar sem er fæddur árið 1991 er uppalinn hjá liði HK og hefur bæði varið mark þeirra og varaliðs félagins Ýmis undanfarin ár.

Samtals hefur hann leikið 56 leiki með meistaraflokkum félaganna síðan árið 2007 en í sumar hefur hann verið varamarkvörður hjá liði HK í annarri deildinni.

Nokkur meiðsli hafa verið að hrjá markmenn Skagamanna undanfarið en eins og kunnugt er þurfti Páll Gísli að fara í speglun vegna rifins liðþófa og verður frá í einhverjar vikur í viðbót.

Auk þess meiddist Gísli Þór Gíslason þriðji markvörður ÍA á hné í síðustu viku. Árni Snær Ólafsson var því um þessar mundir eini markvörðurinn sem var heill heilsu og því var brugðið á það ráð að fá Gunnar lánaðan.

Gunnar gæti komið inn í leikmannahópinn strax í kvöld þegar ÍA mætir Selfyssingum á heimavelli í Pepsi-deildinni.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.