16.07.12 - 10:44
Magnús Már Einarsson
Fabio Capello tekur við Rússum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fabio Capello hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Rússa en þetta var staðfest í dag.
Capello tekur við liðinu af Dick Advocaat sem hætti eftir EM á dögunum þar sem Rússar komust ekki upp úr riðlinum.
Í síðustu viku birtu Rússar lista með nöfnum 13 þjálfara sem voru á óskalista þeirra.
Í kjölfarið fóru af stað viðræður við Capello og þær gengu fljótt fyrir sig.
Capello hefur núna skrifað undir hjá Rússum Capello en þessi 66 ára gamli Ítali hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann hætti með enska landsliðið í febrúar.

Heimild: Sky