Fotbolti.net
16.07.12 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Henning Jónasson í Gróttu (Staðfest)

Henning Jónasson í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Miðjumaðurinn Henning Eyþór Jónasson hefur gengið til liðs við Gróttu á Seltjarnarnesi.
Henning hjálpaði Selfyssingum að komast upp í Pepsi-deildina árið 2009. Hann gat síðan einungis leikið einn leik með liðinu í Pepsi-deildinni 2010 þar sem meiðsli settu strik í reikninginn.

Síðan þá hefur Henning ekkert spilað fyrir utan bikarleik með uppeldisfélagi sínu Stokkseyri í vor.

Henning er kominn með leikheimild með Gróttu og hann gæti leikið með liðinu gegn KV í nágrannaslag í annarri deildinni í kvöld.

Henning er 29 ára gamall en hann hefur á ferli sínum einnig leikið með KR, Þrótti og Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.