Fotbolti.net
16.07.12 - 14:26
Magnús Már Einarsson

Erdzan Beciri í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Erdzan Beciri í leik með HK árið 2008.

Erdzan Beciri í leik með HK árið 2008.

Canon

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið slóvenska miðvörðinn Erdzan Beciri í sínar raðir en hann mun leika með liðinu út tímabilið.
Beciri gekk til upphaflega liðs við Ólafsvíkinga vorið 2010 en hætti við að koma eftir eldgosið í Eyjafjallajökli þar sem hann treysti sér ekki til að koma á meðan að það stóð yfir.

Eldgosinu er nú löngu lokið og Beciri er mættur til landsins og mun leika með Ólafsvíkingum út tímabilið.

Beciri þekkir til í íslenska boltanum því hann spilaði með HK í Pepsi-deildinni síðari hluta sumars árið 2008.

Ólafsvíkingar sitja á toppnum í fyrstu deildinni en þær mæta Víkingi R. á útivelli í elleftu umferðinni annað kvöld.

Ekki er ljóst hvort að Beciri muni fá leikheimild fyrir þann leik en leikheimildin ætti að detta í hús í dag eða á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.