16.07.12 - 14:33
Hafliði Breiðfjörð
Johanna Rasmussen í Val (Staðfest)

Johanna Rasmussen.

Mynd: Getty Images

Johanna Rasmussen.

Mynd: Getty Images

Danska landsliðskonan Johanna Rasmussen er gengin til liðs við Val á láni frá Kristianstad í Svíþjóð.
Rasmussen er þegar komin með leikheimild með Val og getur því spilað með liðinu gegn ÍBV í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Hún er kærasta Brett Maron markmanns Vals liðsins og verður hér á landi í stuttan tíma meðan hlé er á sænsku deildinni.
Rasmussen er sóknarmaður sem lék áður með B1921 og Fortuna Hjörring í Danmörku áður en hún fór í stórlið Umeå þar sem hún var 2008-2009. Hún lék svo í Bandaríkjunum með Atlanta Beat og magicJack árin 2010 og 2011.
2011 gekk hún svo til liðs við Kristianstad en Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Hún er annar leikmaðurinn sem Kristianstad lánar svona í stuttan tíma til Vals, áður hafði Guðný Björk Óðinsdóttir verið þar fyrir tveimur árum.
Rasmussen hefur skorað 24 mörk í 81 landsleik fyrir Danmörku en hún er 28 ára gömul.