16.07.12 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fraser Fyvie kominn til Wigan (Staðfest)

Fyvie í leik með skoska U-19 ára landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Wigan hefur tekið fyrsta skrefið sitt á leikmannamarkaðinum í sumar en félagið var að fá Fraser Fyvie til sín frá Aberdeen.
Fyvie er 19 ára Skoti sem hefur verið gríðarlega eftirsóttur af mörgum enskum liðum, þá aðallega Fulham og Norwich.

Fyvie er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Wigan og var Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan, tekinn í viðtal í tilefni þess.
,,Ég er spenntur því við höfum fengið til okkar góðan leikmann með sterka andlega hlið sem er aðeins nítján ára gamall,\" sagði Roberto Martinez.
,,Hann hefur frábæra framtíð í höndum sér og við erum allir hæstánægðir með að hann sé að taka næsta skref á ferlinum sínum hér hjá Wigan Athletic.
,,Hann er frábær tæknilega séð og nýtur sín mest á miðju vallarins þar sem hann getur séð um gríðarlega stór svæði. Hann er góður með og án boltans, hann les leikinn mjög vel og er mjög gáfaður ungur maður.
,,Hann er gríðarlega leikreyndur og hungraður í árangur. Hann er klár í að spila með stóru strákunum.\"
Fyvie spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Aberdeen aðeins 16 ára og hefur spilað meira en 50 deildarleiki fyrir félagið síðan þá.