Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. október 2019 15:34
Magnús Már Einarsson
Heimsmet í mætingu á næsta leik enska kvennalandsliðsins
England fagnar marki.
England fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Uppselt er á vináttuleik kvennaliða Englands og Þýskalands á Wembley í næsta mánuði.

Wembley tekur 90 þúsund áhorfendur í sæti og enska knattspyrnusambandið staðfesti í dag að uppselt sé á leikinn.

Allt lítur því út fyrir að heimsmet verði sett í áhorfendafjölda á kvennaleik.

Núverandi met er 80,203 áhorfendur á leik Bandaríkjanna og Japan í úrslitum á Ólympíuleikunum árið 2012.

Metið á heimaleik hjá enska landsliðinu er 45,619 áhorfendur í leik gegn Þýskalandi á Wembley árið 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner