Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. október 2020 18:00
Elvar Geir Magnússon
Stóð við stóru orðin og fékk sér Coady húðflúr
Mynd: ASHLEY STAIN
Ashley Stain er tvítugur stuðningsmaður Wolves og gríðarlegur Conor Coady aðdáandi.

Ashley tilkynnti það á Twitter fyrir landsleik Englands og Wales nýlega að ef miðvörðurinn myndi skora fyrir enska landsliðið í leiknum þá myndi hann fá sér húðflúr af honum.

Þegar Coady skoraði svo í leiknum sprakk allt í loft á Twitter aðgangi Ashley og yfir 12 þúsund manns ýttu á like við færsluna.

Ashley hefur nú látið húðflúra mynd af Coady á sig og það ekki með neinum trega.

„Hann er fyrirliði Úlfanna og ég elska hann og félagið í döðlur," segir Ashley.
Athugasemdir
banner
banner