Man Utd hefur engan áhuga á Ramos - Tottenham reynir að selja Bissouma - Bayern ætlar að ræða við Guehi
   fös 17. janúar 2025 22:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Trafford varði tvær vítaspyrnur í toppslag
James Trafford
James Trafford
Mynd: EPA
Burnley 0 - 0 Sunderland
0-0 Wilson Isidor ('86 , Misnotað víti)
0-0 Wilson Isidor ('90 , Misnotað víti)

Það var svakaleg dramatík þegar Burnley fékk Sunderland í heimsókn í Championship deildinni í kvöld.

Burnley var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en dæmið snérist við í seinni hálfleik.

Sunderland fékk tvö gullin tækifæri til að komast yfir en þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma fékk liðið vítaspyrnu. James Trafford, markvörður Burnley, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna frá Wilson Isidor.

Þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fékk Sunderland aðra vítaspyrnu. Aftur steig Isidor á punktinn en aftur hafði Trafford betur.

Burnley er með 53 stig, jafn mörg stig og topplið Leeds sem á leik til góða en Sunderland er í 4. sæti með 51 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 20 13 5 2 51 22 +29 44
2 Middlesbrough 20 11 6 3 30 21 +9 39
3 Millwall 20 10 5 5 24 26 -2 35
4 Ipswich Town 20 9 7 4 34 19 +15 34
5 Preston NE 20 8 8 4 27 21 +6 32
6 Hull City 20 9 4 7 33 34 -1 31
7 QPR 20 9 4 7 27 30 -3 31
8 Stoke City 20 9 3 8 26 19 +7 30
9 Southampton 20 8 6 6 34 28 +6 30
10 Bristol City 20 8 6 6 28 23 +5 30
11 Birmingham 20 8 4 8 29 25 +4 28
12 Watford 20 7 7 6 28 26 +2 28
13 Leicester 20 7 7 6 27 26 +1 28
14 Wrexham 20 6 9 5 24 23 +1 27
15 Derby County 20 7 6 7 27 29 -2 27
16 West Brom 20 7 4 9 23 28 -5 25
17 Sheffield Utd 20 7 2 11 25 29 -4 23
18 Swansea 20 6 5 9 21 27 -6 23
19 Charlton Athletic 19 6 5 8 19 25 -6 23
20 Blackburn 19 6 4 9 19 24 -5 22
21 Oxford United 20 4 7 9 21 28 -7 19
22 Portsmouth 19 4 5 10 15 26 -11 17
23 Norwich 20 3 5 12 22 33 -11 14
24 Sheff Wed 19 1 6 12 15 37 -22 -9
Athugasemdir
banner
banner
banner