Stjarnan fær unglingalandsliðskonu úr Breiðabliki (Staðfest)

Mætt í Stjörnuna.

Mynd: Stjarnan

Mætt í Stjörnuna.

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur samið við Eyrúnu Völu Harðardóttir um að leika með félaginu á næstunni.
Eyrún er unglingalandsliðskona sem á að baki tvo leiki með U19 landsliði Íslands, en hún kemur til Stjörnunnar frá nágrönnunum í Breiðabliki.

Eyrún getur spilað bæði sem kantmaður og bakvörður, en í fyrra lék hún á láni hjá Aftureldingu í Bestu deildinni. Þar skoraði hún tvö mörk í fjórum leikjum, þar á meðal gerði hún eina mark Aftureldingar í 7-1 tapi gegn Stjörnunni í Garðabænum.
„Eyrún Vala er öskufljót og fylgin sér og kann vel við sig á Samsung vellinum en hún skoraði fyrsta mark leiksins og eina mark Afureldingar 23 ágúst síðastliðinn í 7-1 sigri Stjörnunnar í Bestu deildinni," segir í tilkynningu Stjörnunnar.
„Velkomin Eyrún og til hamingju!"
Stjarnan hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og spilar í forkeppni Meistaradeildarinnar í sumar.