Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   þri 17. mars 2026 20:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir er komið í úrslit Lengjubikarsins annað árið í röð eftir sigur á Þór á Akureyri í kvöld. Fótbolti.net spjallaði við Guðmund Tyrfingsson, leikmann Fylkis, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  2 Fylkir

„Við vorum með grunnatriðin upp á tíu, vorum mættir til leiks alveg frá fyrstu mínútu. Ef við gerum það þá erum við hörkulið," sagði Gummi.

„Ég hélt að þeir myndu koma grimmari og fastari í okkur. Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu með látum og vinna fyrsta og seinni boltann. Ef við gerum grunnatriðin vel erum við hörkuflottir."

Hann kom Fylkismönnum yfir þegar hann skoraði með góðu skoti.

„Mikið pláss á bakið, ég nýtti mér það og fer yfir á hægri, klobba hann og set hann eiginlega upp í skeytin, geggjað mark."

Fylkir fær KR í heiimsókn í úrslitaleiknum um næstu helgi.

„Það er hörkuleikur á móti hörkuliði sem er vel þjálfað. Við unnum þá í undanúrslitum í fyrra og eigum að hefna síðan í fyrra."
Slapp
banner
banner