Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 22:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Marokkó dæmdur sigur á Afríkumótinu tveimur mánuðum eftir að mótinu lauk
Úr úrslitaleiknum
Úr úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Afríska fótboltasambandið hefur gert úrslit úrslitaleik Afríkukeppninnar ógild og Marokkó hefur verið dæmdur sigur á mótinu en liðið tapaði úrslitaleiknum gegn Senegal. Mótinu lauk í janúar.

Brahim Diaz, leikmaður Marokkó, féll niður í teignum í blálokin, dómarinn hélt leiknum áfram en að lokum dæmdi VAR vítaspyrnu. Það var vægast sagt mikið ósætti hjá Senegal með atvikið og Pape Thiaw, þjálfari Senegal, skipaði leikmönnum liðsins að fara inn í klefa í mótmælaskyni.

Marokkó kærði úrslit leiksins og áfrýjunarnefnd afríska sambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að hegðun senegalska liðsins hafi brotið gegn reglugerðum og Marokkó hefur verið dæmdur 3-0 sigur.

Þetta er í annað sinn sem Marokkó vinnur titilinn.
Athugasemdir
banner
banner