Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 22:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Fjögur mörk dæmd af á Etihad - Arsenal og PSG örugglega áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var áhugavert kvöld í Meistaradeildinni þar sem Manchester City og Chelsea þurftu á kraftaverki að halda til að komast áfram í átta liða úrslit keppninnar.

Man City fékk Real Madrid í heimsókn á Etihad en enska liðið tapaði fyrri leiknum 3-0.

City byrjaði af miklum krafti og ógnaði marki Real mikið en staðan var áfram markalaus þar til eftiir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Þetta var orðið ansi erfitt fyrir City eftir tuttugu mínútna leik þegar Bernardo Silva varði skot frá Vinicius Junior með hendinni og Real Madrid fékk vítaspyrnu og Silva var rekinn af velli með rautt spjald.

Vinicius steig á punktinn og skoraði og kom Real Madrid í fjögurra marka forystu í einvíginu.

Það var því ljóst að róðurinn yrði ansi erfiður fyrir City manni færri og fjórum mörkum undir. Jeremy Doku var nálægt því að skora strax í kjölfarið en Thibaut Courtois varði vel frá honum.

Leikurinn var áfram opinn og skemmtilegur og bæði lið fengu mjög góð tækifæri en City náði að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks þegar Erling Haaland skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Doku.

Courtois þurfti að fara af velli í hálfleik og Andriy Lunin kom inn á sem varamaður. Bæði lið fengu helling af marktækifærum í seinni hálfleik en tvö mörk voru dæmd af City vegna rangstöðu og tvö mörk af Real.

Eitt mark var dæmt af Vinicius í lokin en hann skoraði strax í kjölfarið og innsiglaði sigur Real Madrid.

PSG er komið áfram eftir öruggan sigur á Chelsea. PSG vann fyrri leikinn á heimavelli 5-2 og gerði svo gott sem út um leikinn strax í upphafi þegar Khivicha Kvaratskhelia kom liðinu yfir.

Bradley Barcola bætti öðru markinu við eftir tæplega stundafjórðung. það var síðan hinn 19 ára gamli Senny Mayulu sem innsiglaði öruggan sigur liðsins.

Þá er Arsenal komið áfram eftir sigur á Leverkusen en liðin skildu jöfn í fyrri leiknum í Þýskalandi.

Eberechi Eze kom Arsenal yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Eftir klukkutíma leik voru leikmenn Leverkusen í vandræðum með að koma boltanum frá og Declan Rice náði honum og skoraði með góðu skoti og innsiglaði sigur Arsenal.

Arsenal mætir Sporting í átta liða úrslitum. Real mætir að öllum líkindum Bayern sem er 6-1 yfir gegn Atalanta. Þá mætir PSG sigurvegaranum í leik Galatasaray og Liverpool en Galatasaray er marki yfir eftir fyrri leikinn í Tyrklandi.

Arsenal 2 - 0 Bayer
1-0 Eberechi Eze ('36 )
2-0 Declan Rice ('63 )

Chelsea 0 - 3 Paris Saint Germain
0-1 Khvicha Kvaratskhelia ('6 )
0-2 Bradley Barcola ('14 )
0-3 Senny Mayulu ('62 )

Manchester City 1 - 2 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('22 , víti)
1-1 Erling Haaland ('41 )
1-2 Vinicius Junior ('90 )
Rautt spjald: Bernardo Silva, Manchester City ('20)
Athugasemdir
banner