Meiðsli Kevin de Bruyne líta ekki vel út að sögn Pep Guardiola, stjóra Manchester City, sem mætti Chelsea í enska bikarnum í dag.
Leikið var í undanúrslitum keppninnar en Chelsea hafði betur með einu marki gegn engu og fer í úrslit.
„Hann finnur til. Hann fer í skoðun á morgun en þeir segja mér að þetta líti ekki vel út," sagði Guardiola en um ökklameiðsli er að ræða.
De Bruyne fór af velli á 48. mínútu en hann meiddist eftir baráttu við N'Golo Kante sem átti afar góðan leik fyrir Chelsea.
Það væri mikið áfall fyrir Man City að missa Belgann lengi en liðið er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar sem og úrslit enska deildabikarsins.
Athugasemdir