Newcastle hafði betur gegn West Ham þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni í dag.
West Ham átti skelfilegan fyrri hálfleik þar sem liðið gaf tvö vandræðaleg mörk og missti mann af velli með rautt spjald.
Lokatölur voru 3-2 og þessi sigur fer langt með að tryggja Newcastle áframhaldandi veru í deildinni. Liðið er núna níu stigum frá fallsæti. Þetta er afskaplega súrt tap fyrir West Ham sem er í fjórða sæti með 55 stig. Chelsea og Liverpool eiga núna möguleika á því að komast upp fyrir West Ham.
Með því að smella hér að neðan má sjá allt það helsta úr leiknum, þar á meðal mörkin klaufalega sem West Ham fékk á sig, rauða spjaldið og dramatískt sigurmark Joe Willock.
Athugasemdir