Arnór Sölvi Harðarson, leikmaður ÍR, gekk nýverið undir aðgerð á báðum kálfum vegna vöðvahólfeinkenna.
Arnór spilaði tíu leiki með ÍR í fyrra, en liðið var á toppi Lengjudeildarinnar þegar hann fór til Bandaríkjanna í nám í lok júlí. ÍR missti naumlega af umspilssæti eftir að hafa lent í fimmta sæti á síðasta tímabili.

Arnór spilaði fyrir Asheville Bulldocs háskólanum í Bandaríkjunum í vetur en hann greindist nýlega með framangreind vöðvahólfaeinkenni í kálfum.
Hann stefnir á endurkomu síðsumars og vonast til að ná einhverjum leikjum með Breiðhyltingum áður en hann heldur aftur til náms í Bandaríkjunum.