Fotbolti.net
24.06.26 - 11:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kveður Þór og æfir með norsku B-deildar liði

Glæsilegt mark gegn Fram.

Glæsilegt mark gegn Fram.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Norðmaðurinn Sebastian Haugland yfirgaf herbúðir Þórs í upphafi mánaðar eftir um tvo mánuði hjá félaginu. Hann kvaddi svo Þór formlega á Instagram í gær.

Haugland er þrítugur framherji sem skoraði eitt mark fyrir Þór; glæsilegt sigurmark gegn Fram í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Bergensavisen segir þá að Haugland sé að æfa með liði Åsane í Bergen.
Hann var keyptur til Þórs frá Hödd sem spilar í norsku B-deildinni en hann hafði þar á undan verið hjá Åsane, Sandviken og Arna-Björnar.

Åsane situr í 15. sæti norsku B-deildarinnar og Hödd situr í 11. sætinu. Félagaskiptaglugginn í Noregi opnar um miðjan júlí.
Kveður Þór og æfir með norsku B-deildar liði
Canon

Mynd: Instagram/Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.