Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson svaraði frábærlega eftir að hafa gert slæm mistök snemma leiks gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Valur vann 3-2 sigur á erkifjendunum sínum í KR en hægt er að lesa nánar um leikinn með því að smella hérna.
Hannes gerði slæm mistök snemma leiks en hann var gríðarlega öflugur í seinni hálfleiknum.
Hann var traustur í seinni hálfleiknum og bjargaði sigrinum með frábærri markvörslu undir lokin.
„Kiddi smellir boltanum fyrir, Flóki vinnur skallann á fjær og kemur honum aftur fyrir, boltinn dettur á Óskar sem setur boltann með hægri niður í hornið og Hannes með sturlaða vörslu!" skrifaði Baldvin Már Borgvarsson en þetta var síðasta snerting leiksins.
„Þetta er markvarsla sem vinnur leiki," sagði Jón Þór Hauksson í Stúkunni á Stöð 2 Sport.
Sumir markverðir brotna þegar þeir gera mistök. Aðrir stíga upp og bæta upp fyrir mistökin. Því miður er Hannes Þór seinni týpan🧤 #GKunion
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) May 17, 2021
Athugasemdir