Fotbolti.net
17.07.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ryan Allsop í Leyton Orient (Staðfest)

Úr leik hjá Hetti í sumar.

Úr leik hjá Hetti í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Leyton Orient, sem leikur í þriðju efstu deild á Englandi, hefur samið við enska markvörðinn Ryan Allsop.

Allsop yfirgaf herbúðir Hattar fyrr í mánuðinum eftir að hafa staðið vaktina í marki liðsins í fyrstu deildinni.
Allsop kom til Hattar daginn fyrir fyrsta leik í vor og varði mark liðsins í fyrstu átta umferðunum í sumar. Þar lék Allsop frábærlega en hann hélt samtals fjórum sinnum hreinu og fékk einungis sex mörk á sig.

Allsop, sem er tvítugur, mun berjast við Jamie Jones um markvarðarstöðuna hjá Leyton Orient.

Hattarmenn leita þessa dagana logandi ljósi að markverði til að fylla skarð Allsop en leik liðsins gegn Þór sem fara átti fram í kvöld var frestað vegna þátttöku Akureyringa í Evrópudeildinni.

Bjarni Viðar Hólmarsson hefur varið mark Hattar í síðustu tveimur leikum en hann fékk rauða spjaldið gegn Leikni og verður því í leikbanni gegn Þrótti á laugardag. Því er líklegt að Höttur fái nýjan markvörð fyrir leikinn á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.