Fotbolti.net
17.07.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Björn Bergmann til Wolves (Staðfest)

Björn Bergmann til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Bergmann Sigurðarson hefur gengið formlega í raðir Wolves frá Lilleström.

Þessi 21 árs gamli framherij er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir samning við félagið.

Talið er að kaupverðið sé í kringum 2,4 milljónir punda.
Björn segist hafa rætt við hálfbróður sinn Jóhannes Karl Guðjónsson um baráttuna í Championship deildinni.

,,Bróðir minn spilaði hér og ég fylgdist alltaf með honum. Hann sagði mér að gæðin eru mikil og þetta geti verið erfitt þaning að þú þarft að vera í góðu formi til að standa þig vel,\" sagði Björn við enska fjölmiðla.

Björn verður ekki eini Íslendingurinn sem mun leika með Wolves í Championship deildinni í vetur því Eggert Gunnþór Jónsson er líka á mála hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.