17.07.12 - 11:40
Magnús Már Einarsson
Snæfell fær sex leikmenn frá KV (Staðfest)

Mynd: KV

Mynd: KV
Snæfelli í 3. deild hefur borist liðsstyrkur úr óvæntri átt, en sex leikmenn KV í 2. deild hafa gengið til liðs við félagið.
Leikmennirnir eru þeir Björn Berg Gunnarsson, Egill Ólafsson, Ólafur Sigurðsson, Ómar Ingi Ákason, Stefán Friðriksson og Sveinbjörn Þorsteinsson.
Eins og kunnugt er hefur Snæfelli gengið illa í 3. deildinni og átt í erfiðleikum með að manna leikmannahóp liðsins.
Snæfell hefur fengið 124 mörk á sig í C-riðli 3. deildarinnar og ekki ennþá náð að skora mark.
Leikmennirnir sem um ræðir líta á þetta sem tækifæri til að spila fótbolta og hjálpa til fyrir vestan, en KV er nú í 2. sæti 2. deildar, leikmannahópur liðsins stór og margir utan leikmannahóps.
Næsti leikur Snæfells er heimaleikur gegn Kára á fimmtudagskvöld og verða nýju leikmennirnir komnir með leikheimild í tæka tíð fyrir þann leik.