17.07.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Kenny Miller til Vancouver Whitecaps (Staðfest)

Mynd:

Mynd:
Kenny Miller, framherji Cardiff, hefur gengið til liðs við Vancouver Whitecaps sem leikur í MLS deildinni en Teitur Þórðarson þjálfaði liðið á sínum tíma.
Þessi 32 ára gamli Skoti kom til Cardiff frá tyrkneska félaginu Bursaspor í fyrra.
Hann skoraði síðan ellefu mörk með Cardiff á síðasta tímabili en einungis eitt mark í 21 leik á síðari hluta tímabilsins.

Aron Einar Gunnarsson leikur með Cardiff en liðið fór í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor þar sem það tapaði gegn West Ham.
Heimild: BBC