Fotbolti.net
17.07.12 - 15:32
Daníel Freyr Jónsson

Adrian Mariappa til Reading (Staðfest)

Adrian Mariappa.

Adrian Mariappa.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninnum Adrian Mariappa frá Watford.
Þessi 25 ára landsliðsmaður Jamaíka hefur staðist læknisskoðun og skrifaði hann síðan undir þriggja ára samning við nýliðana í ensku úrvalsdeildinni.

Mariappa var í sjö ár hjá Watford og lék 247 leiki fyrir félagið.

Reading hefur verið öflugt á leikmannamarkaðinum í sumar, þar sem Anton Zingarevich, nýr eigandi félagsins, hefur verið að leggja pening í félagið.

Pavel Pogrebnyak, Nicky Shorey, Garath McCleary og Danny Guthrie hafa allir komið á Madejski leikvanginn á undanförnum vikum.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.