17.07.12 - 16:30
Daníel Freyr Jónsson
Naldo farinn til Wolfsburg (Staðfest)

Naldo er farinn til Wolfsburg.

Mynd: Getty Images

Naldo er farinn til Wolfsburg.

Mynd: Getty Images

Brasilíski varnamaðurinn Naldo er genginn í raðir Wolfsburg frá Werder Bremen.
Wolfsburg borgaði óuppgefna upphæð fyrir þennann 29 ára gamla miðvörð, en hann gekk í raðir Bremen árið 2005.
Naldo skoraði 22 mörk í 173 leikjum hjá Bremen og hefur hann mikla reynslu úr Meistaradeildinni með félaginu.
Hann var sá leikmaður sem hafði verið lengst hjá félaginu af núverandi hópi Bremen og segir að það hafi verið það erfið ákvörðun að yfirgefa félagið.
,,Það er mjög erfitt að fara frá Bremen," sagði Naldo við undirskriftina.
,,Ég náði miklum árangri með Werder og félagið og stuðningsmennirnir verða alltaf í hjarta mínu, en tilboðið frá Wolfsburg var mjög gott. Ég á núna möguleika á að vera áfram í Bundesligunni og það er mjög mikilvægt fyrir mig og fjölskyldu mína."